Innlent

Þúsund börn fá ókeypis tannlæknaþjónustu

Samþykktar umsóknir dreifðust jafnt á milli íbúa í Reykjavík og utan hennar og kynskiptingin var einnig jöfn
Samþykktar umsóknir dreifðust jafnt á milli íbúa í Reykjavík og utan hennar og kynskiptingin var einnig jöfn Mynd úr safni
Langflest börn frá tekjulágum heimilum sem sótt var um endurgjaldslausa tannlækningar fyrir fengu samþykkta umsókn.

Lokið hefur verið við að afgreiða allar umsóknir sem bárust um endurgjaldslausar tannlækningar fyrir börn frá tekjulágum heimilum.

Umsóknir komu frá 645 umsækjendum sem sóttu um fyrir 1335 börn frá öllu landinu. Meðalaldur barnanna sem sótt var um fyrir var 9 ár og elstu börnin voru 17 ára. Um 80% umsókna voru samþykktar eða fyrir ríflega 1000 börn.

Ástæða synjunar var yfirleitt að umsækjendur voru yfir þeim tekjuviðmiðum sem sett voru.

Samþykktar umsóknir dreifðust jafnt á milli íbúa í Reykjavík og utan hennar og kynskiptingin var einnig jöfn. Langflestir þeirra sem sóttu um endurgreiðslu ferðakostnaðar fengu það samþykkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×