Innlent

Haukur Þór í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt

Haukur Þór er hér fyrir miðju, ásamt verjanda sínum Gesti Jónssyni sem er til hægri.
Haukur Þór er hér fyrir miðju, ásamt verjanda sínum Gesti Jónssyni sem er til hægri.


Haukur Þór Haraldsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Haukur Þór starfaði hjá Landsbankanum fyrir hrun og var sakfelldur fyrir að hafa eftir bankahrunið millifært 118 milljónir króna af reikningi félagsins NBI Holdings Ltd. 8. október 2008 inn á eigin reikning.

Þetta er í annað sinn sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir í þessu sama máli. Við fyrri meðferð málsins var hann sýknaður í héraði en Hæstiréttur ómerkti þann dóm og vísaði honum aftur til efnislegrar meðferðar.

Félagið NBI Holdings, sem var í eigu sjálfseignarsjóðs á Guernsey og laut stjórn Hauks, hafði legið í dvala í hálfan áratug, en var áður notað af bankanum til að halda utan um eignarhluti í fjármálafyrirtækjum sem hefðu komið til frádráttar eigin fjár bankans ef þeir hefðu verið í efnahagsreikningi hans. Haukur segist hafa ætlað að bjarga fénu frá því að verða að hverri annarri kröfu í þrotabú bankans síðar meir.

Auk tveggja ára fangelsis þarf Haukur að greiða verjanda sínum ríflega fjórar milljónir króna




Fleiri fréttir

Sjá meira


×