Erlent

Mullen segir Pakistana hafa heimilað dráp á blaðamanni

Pakistönsk yfirvöld gáfu leyfi fyrir því þegar blaðamaðurinn Saleem Shazad var myrtur í maí á þessu ári. Þetta fullyrðir bandaríski aðmírállinn Mike Mullen, háttsettasti herforingi Bandaríkjahers.

Mullen lét þessi orð falla á blaðamannafundi í Washington en sagðist ekki geta fullyrt hvort leyniþjónusta Pakistans hefði komið að morðinu. Talsmenn pakistönsku stjórnarinnar voru fljótir til að fordæma ummælin og segja þeir ekkert hæft í ásökunum af þessu tagi.

Saleem hafði skrifað mikið um herskáa múslíma og hafði rétt fyrir dauða sinn skrifað um ítök Al-Kaída í pakistanska flotanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×