Erlent

Bangsamamma banaði ferðamanni í Yellowstone

Kvenkyns grábjörn, eða Grizzly, drap í gær mann í Yellowstone þjóðgarðinum í Bandaríkjunum. Maðurinn var á göngu með konunni sinni þegar þau genge fram á birnuna og hún hennar. Dýrin virðast hafa orðið skelkuð og snérist birnan því til varnar og réðst á fólkið.

Konan slapp naumlega undan dýrinu sem náði þó að slæma hramminum í bakpoka hennar og kasta henni langt upp í loftið. Þetta er fyrsta banvæna bjarndýraárásin í Yellowstone frá árinu 1986.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×