Erlent

Harry Potter æði í London

MYND/AP
Mörg hundruð aðdáendur Harry Potter og félaga hans hafa komið sér fyrir á Leicester torgi í London til þess að eygja von um að sjá stjörnur áttundu og síðustu frumsýningarinnar í þessum mikla bálki sem rakað hefur inn milljörðum síðustu tíu árin.

Myndirnar eru ávallt frumsýndar í London enda er höfundur bókanna um galdrastrákinn frá Bretlandi og flestir leikarana í myndunum Bretar. Mikið verður um dýrðir á svæðinu umhverfis bíóið og hefur heilli götu verið breytt í stíl við undraheim sögunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×