Erlent

Þernan kærir New York Post fyrir meiðyrði

Hótelþernan sem sakaði Dominique Strauss-Kahn fyrrvernandi forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir nauðgun hefur nú kært bandaríska dagblaðið New York Post fyrir meiðyrði eftir að blaðið birti fréttir á forsíðu sinni þess efnis, að konan væri vændiskona.

Í greinum blaðsins var því haldið fram að hún hafi stundað vændið á hótelinu þar sem hún starfaði og að hún hafi haldið því áfram eftir að hún kærði Strauss-Kahn, þegar hún var undir verndarvæng lögreglunnar í New York. Lögmenn konunnar segja fréttirnar algjörlega úr lausu lofti gripnar og hafa því kært blaðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×