Erlent

Lögregluaðgerð í Kristjaníu

Lögreglan í Kaupmannahöfn lét til skarar skríða gegn fíkniefnasölum í Kristjaníu síðdegis í gærdag.

Lögreglan lagði hald á sex kíló af hassi, nokkurt magn af marijúana og 2.300 tilbúnar jónur. Þessu höfðu fíkniefnasalarnir kastað frá sér á flótta undan lögreglunni þegar þeir sáu hana ráðast inn á staðinn. Þá var lagt hald á 8.000 danskar krónur í seðlum.

Fram kemur í fréttum danskra fjölmiðla í morgun að aðgerðin hafi farið friðsamlega fram öfugt við margar aðrar svipaðar lögregluaðgerður í frístaðnum á undanförnum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×