Innlent

Innbrot í matvöruverslun í Vestmannaeyjum

Þrjú ungmenni um tvítugt brutust inn í marvöruverslun í Vestmannaeyjum í nótt og stálu þaðan einhverjum matvælum.

Þau komust óséð undan, en fegnu bakþanka og gáfu sig fram við lögregluna. En þar sem fólkið var í annarlegu ástandi, annaðhvort af áfengisneyslu eða af neyslu ólöglegra fíkniefna, var því stungið í fangageymslur, þar sem þau munu dvelja þar til af þeim verður runnið.

Þó nokkrir gestir eru komnir til Eyja til að taka þátt í goslokahátíðinni, sem verður um helgina, og var líflegt á veitingastöðum bæjarins í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×