Innlent

Slæm byrjun á laxveiðinni í ár

Laxveiðin í ár fer mun verr af stað í þeim 25 ám, sem Landssamband veiðifélaga notar sem viðmiðunarár.

Nú er um það bil mánuður síðan veiði hófst í fyrstu ánum og hafa innan við ellefu hundruð laxar veiðst úr þeim síðan. Á sama tíma í fyrra höfðu um 2,500 laxar veiðst , eða meira en tvöfalt fleiri en núna.

Engin ein skýring er á þessari slöku byrjun, en margir hallast að því að kuldinn í júní kunni að valda þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×