Fótbolti

Skúli Jón: Eins gott og það gat orðið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Viktor Bjarki á ferðinni í kvöld.
Viktor Bjarki á ferðinni í kvöld. mynd/stefán
Skúli Jón Friðgeirsson var kampakátur en uppgefinn eftir frækinn 3-0 sigur KR-inga á MSK Zilina í 2. umferð í forkeppni Evrópudeildar í kvöld

„Við ákváðum að koma inn í þennan leik eins og alla aðra í sumar. Ætluðum ekkert að detta of aftarlega og ákváðum að sækja hratt. Eins og í leiknum gegn Fylki. Biðum eftir þeim og sóttum hratt. Gekk fullkomlega upp. Þegar þeir missa mann útaf ákváðum við að ganga á lagið. Pressa svakalega á þá fyrstu mínúturnar eftir á og við setjum tvö mörk," sagði Skúli Jón.

KR-ingar voru marki yfir þegar miðjumaður Slóvakana lét reka sig útaf fyrir heimskulegt brot snemma í síðari hálfleik.

„Við erum 1-0 yfir í hálfleik og sjáum að við eigum fullt í fangi með þetta lið. Svo missa þeir mann útaf og við ákváðum að pressa þá næstu mínútur og það gekk fullkomlega. Fáum tvö mörk og svo héldum við því. Hefðum svo sem getað haldið uppi meiri pressu en menn voru orðnir þreyttir. 3-0 eru auðvitað mjög góð úrslit," sagði Skúli Jón.

Zilina-menn eru á undirbúningstímabilinu og virkuðu þreyttir í síðari hálfleik enda manni færri.

„Þeir voru orðnir mjög þreyttir í restina en við líka. Erum í svakalegu álagi. Það var mikil orka sem fór í að halda markinu hreinu, vildum ekki fá mark í bakið. Þessi mörk skipta svo miklu máli," sagði Skúli Jón

KR-ingar létu skynsemina ráða för í síðari hálfleik.

„Við duttum svolítið aftar og leyfðum þeim að halda boltanum. Gátum ekki haldið uppi þessari svakalegu pressu sem við gerðum í byrjun seinni hálfleiks. Við vorum orðnir sáttir. Þetta var orðið eins gott og það gat gerst," sagði Skúli Jón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×