Innlent

Ísland, Noregur og Japan gengu út af fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins

salome@365.is skrifar
Mynd/Anton Brink
Fulltrúar Íslands, Noregs og Japans gengu út af fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í dag ásamt fulltrúum annarra ríkja sem hlynnt eru hvalveiðum.

Að sögn Tómasar H. Heiðars, aðalfulltrúa Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, var þetta gert til að koma í veg fyrir að fundurinn væri ályktunarhæfur, en þegar fulltrúarnir gengu út stóð til að greiða atkvæði um tillögu Argentínu og Brasilíu að stofnun griðasvæðis hvala í Suður-Atlantshafi.

Til þess að fundurinn sé ályktunarhæfur þarf helmingur aðildarríkja ráðsins að vera viðstaddur og til þess að tillaga af þessu tagi teljist samþykkt þarf hún síðan stuðning 3/4 hluta þeirra ríkja sem taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Tómas segist telja það nokkuð ljóst að tillagan njóti ekki stuðnings tilskilins meirihluta, en hann óttaðist það hinsvegar að atkvæðagreiðslan væri til þess fallin að auka á sundrungu milli ríkja og koma aftur á ófriði í ráðinu. "Við höfum á undanförnum misserum unnið að því ná málamiðlun milli fylgjenda og andstæðinga hvalveiða í ráðinu og andrúmsloftið innan þess hefur batnað mjög."

Tómas segir stofnun umrædds griðasvæðis hafa verið hluta af drögum að pakkalausn sem lögð voru fyrir ársfund ráðsins í fyrra, en Suður-Ameríkuríkin hafi lagst þvert gegn hugmyndum um slíkar pakkalausnir og ekki verið tilbúin að sýna neinn sveigjanleika til að fallast á hvalveiðar. Tómas telur það því fráleitt að ríkin leggi nú fram einangraða tillögu um griðasvæðið og enn fráleitara að verið sé að keyra málið áfram í atkvæðagreiðslu.

Hann tekur fram að Ísland og önnur hvalveiðasinnuð ríki séu í grundvallaratriðum mótfallin stofnun griðasvæða þar sem hvalveiðar séu bannaðar, nema sýnt verði fram á þörfina fyrir slík svæði með vísindalegum hætti, en að sögn Tómasar hafi engin vísindaleg gögn hafi verið lögð fram til stuðnings umræddu griðasvæði í Suður-Atlantshafi.

Málið er enn til umfjöllunar á fundinum, sem lýkur í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×