Innlent

Karlmaður á sextugsaldri enn þungt haldinn eftir bifhjólaslys

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn og flutti hann á Landspítala við Fossvog.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn og flutti hann á Landspítala við Fossvog. Mynd/hag
Karlmaður á sextugsaldri sem slasaðist alvarlega þegar hann féll af bifhjóli sínu þann 12. júlí síðastliðinn, liggur enn svæfður í öndunarvél. Ástand hans er óbreytt að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans.

Slysið varð nyrðst á Skaga, sem liggur milli Skagafjarðar og Húnaflóa, síðastliðið þriðjudagskvöld. Maðurinn er alvarlega slasaður en læknir gat fátt sagt um batahorfur hans, líðan mannsins væri metin dag frá degi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×