Innlent

Sprengisandur opnast, mánuði seinna en í fyrra

Sprengisandsleið er orðin fær. Mynd/ Kristbjörn Gunnarsson
Sprengisandsleið er orðin fær. Mynd/ Kristbjörn Gunnarsson
Ein vinsælasta hálendisleið landsins, Sprengisandsleið, var loksins opnuð í dag, rúmum mánuði seinna en í fyrra en þá var leiðin orðin fær þann 10. júní. Búið er að opna allar þrjár leiðirnar til Norðurlands, um Bárðardal, Eyjafjarðarleið og Skagafjarðarleið, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þar með eru allir helstu hálendisvegir orðnir jeppafærir, Gæsavatnaleið er þó enn lokuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×