Innlent

Leita að manni á Fimmvörðuhálsi

Leitað er að norskum ferðamanni sem hafði samband við lögreglu í nótt. Mynd úr safni.
Leitað er að norskum ferðamanni sem hafði samband við lögreglu í nótt. Mynd úr safni.
Björgunarsveitir leita nú að norskum ferðamanni sem hafði samband við lögreglu í nótt og óskaði eftir aðstoð þar sem hann hafði slasast á hné og treysti sér ekki til að koma sér til byggða án aðstoðar.

Lögregla var í símasambandi við manninn í nótt, en nú næst ekki í hann lengur. Hann lagði af stað frá skálanum á Fimmvörðuhálsi á milli klukkan fjögur og fimm í gær en lögregla vinnur nú að því að miða út staðsetningu hans út frá símasendum.

Lögreglumaður sem ræddi við vísi sagðist ekki telja að ástand mannsins hafi verið mjög slæmt, en að sjálfsögðu færi það ekki skánandi eftir því sem tímanum líður.

Farið verður í víðtækari leit ef maðurinn finnst ekki með þeim leiðum sem nú er beitt, en björguanrsveitarmenn á vettvangi munu sjá um að leggja mat á ástandið og taka ákvörðun um það hvort frekari aðstoð verði þörf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×