Innlent

Hannes hugsanlega þremur milljónum ríkari í dag

Hannes Smárason.
Hannes Smárason.
Dómur verður kveðinn upp í dag í skaðabótamáli Hannesar Smárasonar gegn fjármálaráðuneytinu en hann krefst þriggja milljóna króna í skaðabætur fyrir ólögmæta kyrrsetningu á eignum hans.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í lok maí en Hannes höfðaði málið gegn ráðuneytinu eftir að Hæstiréttur Íslands úrskurðaði að kyrrsetning á eignum hans, vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum FL Group, væri ólögmæt.

Það var skattrannsóknarstjóri sem krafðist kyrrsetningarinnar og sýslumaður féllst á það. Meðal eigna sem voru kyrrsettar voru þrjár milljónir króna á reikningum Hannesar auk glæsibifreiða í hans eigu sem eru af tegundinni Range Rover og Lincoln Navigator.

Eignir Skarphéðins Bergs Steinarssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar voru einnig frystar.

Þess má geta að Skarphéðinn Berg stefndi Tollstjóra og Skattrannsóknarstjóra ríkisins af sömu ástæðu en tapaði málinu.

Skarphéðinn krafðist fimm milljóna króna í miskabætur og vildi annað eins í skaðabætur vegna kyrrsetningar á eignum hans sem hann þurfti að þola vegna rannsóknar á skattamálum FL Group.

Dómsuppsaga í máli Hannesar verður eftir hádegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×