Innlent

Liggur enn þungt haldinn eftir bifhjólaslys

Mynd/GVA
Karlmaður á sextugsaldri liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hann féll á bifhjóli á Skaga, norðan við Skagaströnd í gærkvöldi og hlaut meðal annars alvarlega höfuðáverka.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, með lækni og neyðarblóð frá Blóðbankanum, sótti manninn á slysstað og lenti með hann við Borgarspítala laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi, þar sem hann gekkst þegar undir aðgerð. Ekki er vitað um tildrög slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×