Innlent

Verkfall hafnsögumanna gæti haft veruleg áhrif

Mynd/Stefán Karlsson
Svo kann að fara að skemmtiferðaskip verði frá að hverfa án þess að farþegar þeirra komist í land, þar sem hafnsögumenn í félagi skipstjórnarmanna hafa boðað verkfallsaðgerðir, en viðsemjandi félagsins er Samband íslenskra sveitarfélaga. Boðað er verkfall frá 26.-30. júlí, síðan 2.-6. ágúst og svo ótímabundið frá 8. ágúst, ef samningar takast ekki.

Miklir hagsmunir ferðaþjónustu eru í húfi auk þess sem verkföllin hefðu áhrif á siglingar fleiri skipa, eins og stórra flutningaskipa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×