Innlent

Bíl stolið af bílaverkstæði

Mynd/Pjetur
Brotist var inn í bílaverkstæði í austurbæ Kópavogs um klukkan fjögur í nótt og þaðan stolið bíl. Vitni að innbrotinu lét lögreglu vita sem stöðvaði bílinn hálftíma síðar og voru þrír menn í honum. Þeir vour allir handteknir og gista fangageymslur.

Einnig var brotist inn í apótek í Kópavogi seint í nótt, en verið er að kanna hverju var stolið þaðan. Enginn hefur verið handtekinn vegna þess.

Þá var gerð tilraun til innbrots í fyrirtæki í Hafnarfirði, en styggð komst að þjófunum, sem komust undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×