Innlent

20 tonn af fiski lokuðu þjóðveginum

Mynd/Stefán Karlsson
Tuttugu tonn af fiski höfnuðu á þjóðveginum í nótt þegar vörubíll valt við Gauksmýri í Vestur-Húnavatnssýslu.

Önnur akrein vegarins hefur nú verið opnuð og fiskurinn hefur verið fjarlægður, en enn er unnið að því að fjarlægja vörubílinn. Lögregla biður vegfarendur því að sýna aðgát þegar þeir keyra um svæðið.

Héraðslögreglumaður á Blönduósi sagðist ekki vita hver ætti fiskinn, en hann yrði urðaður. Ökumaður vörubílsins slasaðist ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×