Innlent

Íbúar í Kleppsholti loki gluggum

Mynd/Vilhelm
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur náð tökum á eldi sem logað hefur á Hringrásarsvæðinu frá því á þriðja tímanum í nótt. Tölverðan reyk leggur frá svæðinu. Vindáttin er enn af landi og reyk leggur út á haf. Íbúar í Kleppsholti eru beðnir um að hafa glugga lokaða þó svo að reyk leggi ekki yfir hverfið þar sem lyktarmengun er talsverð, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum.

Haft hefur verið samband við forráðamenn fyrirtækja á iðnaðarsvæðinu við Klettagarða og nágrenni til að hvetja þá til að loka fyrir loftræstingu og náðst hefur í flesta forráðamenn fyrirtækja á svæðinu.

Klettagarðar, Köllunarklettsvegur, Héðinsgata og Dalbraut að hluta verða lokaðir fyrst um sinn. Áfram verður vakt í Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð.


Tengdar fréttir

Gríðarmikill eldur í Sundahöfn

Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast. Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast.

Enn barist við eldinn

"Það er verið að berjast við þetta. Það er allt tiltækt lið á staðnum og jafnframt var aukamannskapur kallaður út. Þeir eru að vinna í þessu,“ segir slökkviliðsmaður sem Vísir talaði við í nótt. Eldur kviknaði á svæði Hringrásar í Sundahöfn um fjögurleytið í nótt.

Þakklæti til slökkviliðs og lögreglu efst í huga

Orsakir eldsins á svæði Hringrásar við Sundahöfn eru ókunnar. Þegar er hafin handa við að rannsaka eldsupptökin. Eldurinn kom upp í dekkjum á Hringrásarsvæðinu á þriðja tímanum í nótt.

Eldurinn hefur minnkað

Slökkviliðsmenn virðast hafa náð tökum á eldinum. Hann er miklu minni en hann var fyrr í morgun, segir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins sem stendur vaktina við Hringrás í Sundahöfn.

Aðgerðarstjórn kölluð saman í Samhæfingarmiðstöðina

Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins var kölluð saman í Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð í morgun vegna eldsins hjá Hringrás í Sundahöfn. Almannavarnaástandi hefur ekki verið lýst yfir en starfsmenn stöðvarinnar eru í viðbragðsstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×