Innlent

Flugmenn ákveða næstu skref

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fundi stjórnar og samninganefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna lauk rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld. Eins og Vísir sagði frá fyrr í kvöld felldu flugmenn kjarasamning sem var gerður við Icelandair á dögunum.

„Það var fundur. Það hefur ekkert verið ákveðið og bara verið að ákveða næstu skref,“ segir Hafsteinn Pálsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Hann gerir ráð fyrir að fundað verði að nýju á morgun.

Hafsteinn segir ekkert hafa verið ákveðið um aðgerðir á borð við yfirvinnubann. „Þetta er bara nýtt fyrir okkur og við erum bara að skoða næstu skref,“ segir Hafsteinn í samtali við Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×