Innlent

Byrjað að flytja bíla og fólk yfir Múlakvísl

Farið er að ferja fólk yfir Múlakvísl en nokkur fjöldi fólks bíður eftir að komast yfir ána í rútur. Rúta og tveir trukkar eru fyrir austan til að ferja fólk og bíla yfir á vaði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Útbúin hafa verið plön beggja vegna þar sem hægt er að aka bílum beint á vörubílspall. Bílaflutningar eru einnig að hefjast.

Miðað er við að ferja yfir ána til að minnsta kosti 22:00 í kvöld og jafnvel til miðnættis.

Vörubílarnir geta tekið alla venjulega bíla. Fært er fyrir stærri fjórhjóladrifsbíla um Fjallabaksleið nyrðri.

Reynsla á eftir að koma á þennan ferðamáta en júlíumferðin á þessu svæði er um 1000-1200 bílar á sólarhring.

Um 10 mínútur tekur að koma bíl yfir vaðið þannig að ljóst er að ef umferð verður mikil gæti orðið töluverð bið á því að komast yfir Múlakvísl. Þó má búast við að hægt verði að anna um 25-35 prósent af venjubundinni umferð með þessum hætti.

Þá hafa Avis bílaleigan, Hertz bílaleigan og fleiri aðilar tekið sig saman og leigt stóran trukk til þess að ferja bíla á þeirra vegum yfir ána. Fyrsti bíllinn var ferjaður yfir klukkan hálffimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×