Erlent

40 börn látin í rútuslysi

Ekki er vitað hversu margir voru um borð í rútunni, en rútur eru oft þéttsetnar í Bangladesh.
Ekki er vitað hversu margir voru um borð í rútunni, en rútur eru oft þéttsetnar í Bangladesh. Mnd/AP
Að minnsta kosti fjörtíu skólabörn hafa látið lífið í rútuslysi í Bangladesh, en yfirvöld í Chittagong héraði segja líklegt að sú tala hækki.

Rútan sökk í djúpan skurð í suðurhluta landsins. Þegar hafa fjörtíu lík fundist en talið er að fleiri séu enn föst á botni skurðsins.

Nemendurnir voru á leið heim af fótboltamóti, eftir því sem greint er frá á vef BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×