Fótbolti

Jóhann Berg skoraði í sigri AZ Alkmaar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson. Mynd/Anton
Jóhann Berg Guðmundsson skoraði seinna mark AZ Alkmaar í 2-0 sigri á tékkneska liðinu Jablonec í 3. umferð Evrópudeildarinnar í dag. Þetta var fyrri leikur liðanna en seinni leikurinn fer fram í Tékklandi í næstu viku.

Jóhann Berg kom inn á sem varamaður á 65. mínútu leiksins og innsiglaði sigur AZ tveimur mínútum fyrir leikslok. Pontus Wernbloom skoraði fyrra markið á 64. mínútu. Mark Jóhanns Berg kemur AZ ðí mun betri stöðu fyrir seinni leikinn.

Jóhann Berg skoraði 2 mörk í 9 Evrópuleikjum með AZ í fyrra en náði nú að opna markareikninginn í fyrsta Evrópuleik liðsins á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×