Fótbolti

FH-ingar úr leik eftir 2-0 tap á Madeira

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Stefán
FH-ingar eru úr leik í 2. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar eftir 2-0 tap fyrir portúgalska liðinu CD Nacional á Madeira í kvöld. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í Kaplakrika fyrir vikur og unnu Portúgalirnir 3-1 samanlagt og mæta sænska liðinu Häcken í næstu umferð.

FH-vörnin hélt út fram á 55. mínútu leiksins þegar Luís Alberto kom CD Nacional í 1-0 en seinna markið skoraði síðan varamaðurinn Daniel Candeias á 90. mínútu.

Sænska liðið Häcken tryggði sér leik á móti CD Nacional með því að vinna 2-0 sigur á finnska liðinu Honka í Finnlandi í kvöld en Svíarnir unnu því 3-0 samanlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×