Erlent

Obama er fimmtugur í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Barack Obama fagnar fimmtugsafmæli sínu. Mynd/ AFP.
Barack Obama fagnar fimmtugsafmæli sínu. Mynd/ AFP.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er fimmtugur í dag. Obama hefur átt viðburðarríkan stjórnmálaferil undanfarin ár. Hann var kjörinn forseti fyrir tveimur og hálfu ári síðan. Áður en hann tók við því embætti var hann öldungadeildarþingmaður.

Obama hefur þó ekki átt náðuga daga á forsetastóli því barátta hans við að ná stöðugleika í efnahagslífinu hefur staðið yfir allt frá því að hann tók við embætti og ekki sér fyrir endann á þeirri miklu baráttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×