Erlent

Mubarak fyrir dómara í dag

Réttarhöld yfir Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, hefjast í Kaíró í dag. Mubarak er ákærður um spillingu og að hafa fyrirskipað árásir á mótmælendur en dauðarefsing liggur við þessum glæpum.

Mubarak hefur dvalið á sjúkrahúsi að undanförnu og um tíma var ekki ljóst hvort hann myndi mæta í dómsalinn í dag. Hinsvegar fékkst það staðfest snemma í morgun að forsetinn fyrrverandi væri á leiðinni til Kaíró.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×