Erlent

Froðukastari dæmdur í sex vikna fangelsi

Jonathan May-Bowles, sem varð heimsþekktur þegar hann kastaði raksápuböku á fjölmiðlamógúlinn Rupert Murdoch þann 20 júlí síðastliðinn, hefur verið dæmdur í sex vikna fangelsi. Hann var í síðustu viku sakfelldur fyrir líkamsárás og áreiti.

Hinn 26 ára gamli May-Bowles játaði sök í málinu, en hann veittist að Murdoch og fleygði á hann rakfroðubökunni þar sem fjölmiðlakóngurinn sat fyrir svörum hjá breskri þingnefnd vegna hlerunarmálsins sem varð vikublaðinu News of the World að falli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×