Erlent

Nýr hitabeltisstormur í Karabíska hafinu

Hitabeltisstormurinn Emily er nú að sækja í sig veðrið í Karabíska hafinu. Sem stendur er vindhraði Emily rúmlega 60 kílómetrar á klukkustund og fer vaxandi.

Íbúar á fjölda eyja í Karabíska hafinu hafa verið varaðir við storminum sem og íbúar í Puerto Rico og Dóminíska lýðveldinu.

Reiknað er með að stormurinn muni færa sig í áttina til Flórída þegar líður á vikuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×