Viðskipti erlent

Yfir milljarður bíla til í heiminum

Fjöldi bíla í heiminum fór í fyrsta sinn yfir milljarðinn á síðasta ári. Þetta kemur fram í útreikningum sem bandaríska bílablaðið Ward´s Auto hefur tekið saman.

Samkvæmt blaðinu var bílafjöldinn í heiminum 980 milljónir eintaka árið 2009. Þeim fjölgaði svo í einn milljarð og fimmtán milljónir á síðasta ári. Tekið skal fram að hér er um að ræða fjöldann af einkabílum, sendiferðabílum og strætisvögnum. Inn í tölunni eru ekki vörubílar eða önnur ökutæki.

Fjölgunin milli áranna 2009 og 2010 er 3,6% sem er nokkuð yfir meðallagi fjölgunar hvers árs frá árinu 2000. Aukninguna á bílaeign íbúa heimsins má einkum rekja til Kína en þar jókst bílaflotinn um 27,5% milli fyrrgreindra ára. Alls eru nú 78 milljónir bíla skráðir í Kína.

Í Bandaríkjunum aftur á móti jókst bílaeigna um innan við 1% en þar í landi er samt sem áður mestur fjöldi bíla saman kominn í einu landi eða tæplega 240 milljónir bíla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×