Innlent

Enginn ætti að þurfa að hugleiða sjálfsvíg

LVP skrifar
Benedikt Guðmundsson þekkir af eigin raun áhrif sjálfsvíga.
Benedikt Guðmundsson þekkir af eigin raun áhrif sjálfsvíga.
Fjögurra barna faðir, sem missti son sinn þegar hann fyrirfór sér, segir sjálfsvígið hafa skilið eftir margar spurningar og sektarkennd. Forvarnir gegn sjálfsvígum séu mikilvægar því engum eigi að líða svo illa að hann vilji ekki lifa.  Benedikt Guðmundsson þekkir af eigin raun áhrif sjálfsvíga. Hann missti son sinn fyrir rúmum fimm árum. Hann var tuttugu og eins árs og segir Benedikt að það hafi verið mikið högg fyrir fjölskylduna. ,, Þetta skilur eftir margar spurningar og sektarkenndin og allt sem kemur í kjölfarið og allar spurningarnar. Þetta er nánast óbærilegt."

Góðir vinir, fjölskylda og aðrir hafi hjálpað honum mikið í sorginni  Það hafi líka hjálpað honum mikið að ræða málin og tala við aðstandendur í sömu sporum.

Á morgun er alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna og verður því haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni annað kvöld. „Fyrst og fremst er þetta tilgangurinn að minnast þeirra sem hafa tekið líf sitt og þetta er líka vettvangur fyrir aðstandendur að koma og sýna samhug og samstöðu".

Á morgun verður einnig opnuð sérstök vefsíða sjalfsvig.is en hún er ætluð fólki í sjálfsvígshættu og aðstandendum þeirra sem hafa svipt sig lífi. Benedikt segir forvarnir mikilvægar en oft sé hægt að sjá einkenni hjá fólki sem ætlar að taka sitt eigið líf. ,, Við náttúrulega sjáum það alveg eftir á að sonur okkar sýndi ákveðin einkenni sem við sáum ekki fyrr en eftir á. Ef við hefðum vitað betur hefðum við vonandi getað komið í veg fyrir þetta".

Benedikt segir mikilvægt að fólk sé vakandi fyrir því hvernig fólkinu í kringum það líður. ,, Við þurfum bara að sýna vinum okkar meiri athygli og passa upp á það að það líði engum svo illa að hann vilji ekki lifa".

Hann hvetur þá sem eru að íhuga sjálfsvíg að leita sér hjálpar. Hægt sé að leita sér hjálpar hjá fagfólki svo sem sálfræðingum, prestum og heimilislæknum. Þá geti fólk leitað til besta vinar eða foreldra. Mikilvægt sé að tala um vandamálin því það sé hægt að leysa öll vandamál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×