Innlent

Þolinmæði lögreglumanna vegna kjaramála á þrotum

Fjölmennur félagsfundur Lögreglufélags Suðurnesja var haldinn í gær en tilefni fundarins var að ræða veika kjaralega stöðu lögreglumanna. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum er vakin athygli á því að lögreglumenn hafi verið kjarasamningslausir í 281 dag. Það sé með öllu óviðunandi.

„Á undanförnum árum hafa þær stéttir, sem lögreglumenn bera sig svo oft saman við, fengið áunnar kjarabætur sem hefur leitt til þess að lögreglumenn hafa orðið eftirbátar þessara viðmiðunarstétta,“ segir ennfremur. „Á þessum tíma hefur álag lögreglumanna aukist. Við þetta verður ekki unað.“

Kjaradeilu lögreglumanna var í lok júní vísað í gerðadóm og er niðurstöðu að vænta þann 23. september næstkomandi. „Binda lögreglumenn miklar vonir við að sú niðurstaða verði lögreglumönnum ásættanleg annars er úr vöndu að ráða fyrir alla sem hlut eiga að máli. Lögreglumenn hafa verið að stilla saman strengi sína síðustu vikur þar sem þolinmæði þeirra er á þrotum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×