Innlent

Chomsky fjallar um heimsmálin í Háskólabíó

Chomsky fundaði með Jóni Gnarr í morgun.
Chomsky fundaði með Jóni Gnarr í morgun.
Bandaríski málvísindamaðurinn og samfélagsrýnirinn dr. Noam Chomsky, öndvegisfyrirlesari Hugvísindasviðs, flytur í dag tvo fyrirlestra á vegum Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Chomsky kom til landsins í gær. Chomsky fundaði í morgun með Jóni Gnarr borgarstóra og eiginkonu hans en á hádegi flutti hann fyrirlestur á námskeiði um áhrif hugmynda hans á rannsóknir og umræðu í mannlegum fræðum. Námskeiðið er kennt á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Fyrirlestur dr. Chomskys fjallaði um málfræði og nefnist „The ´Generative Enterprise´: Its origins, goals, prospects" að því er fram kemur í tilkynningu frá Háskólanum.

„Klukkan 15 í dag er svo komið að seinna erindi dr. Chomskys. Það verður flutt í stóra sal Háskólabíós. Í því erindi mun dr. Chomsky fjalla um stöðu heimsmálanna, lýðræði, vald og ofbeldi undir yfirskriftinni ,,The two 9/11s: Their historical significance". Þann 11. september verður áratugur liðinn frá árásunum á Tvíburaturnana í New York en Chomsky hefur talsvert ritað og rætt um orsakir og afleiðingar þeirra,“ segir ennfremur.

 

Dr. Noam Chomsky er bandarískur málvísindamaður, rithöfundur og virkur þátttakandi í stjórnmálaumræðu. Hann er prófessor emeritus í málvísindum við Massachusetts Institute of Technology (MIT). Undir lok 6. áratugs síðastliðinnar aldar lagði dr. Chomsky grunninn að þeirri stefnu í málvísindum sem hefur verið nefnd málkunnáttufræði á íslensku. Sú stefna olli straumhvörfum í málvísindum, en eitt meginatriði hennar er að öll tungumál séu sama eðlis, maðurinn hafi meðfæddan hæfileika til að tileinka sér þau og það greini hann frá dýrum. Allar götur síðan hefur dr. Chomsky verið að þróa málvísindakenningu sína í fjölda greina og bóka. Hann er talinn einn fremsti málvísindamaður sem uppi hefur verið og er einn þeirra vísindamanna sem oftast er vitnað til í fræðiritum.

Dr. Chomsky er einnig heimskunnur sem samfélagsrýnir og hefur birt fjölda bóka og greina á því sviði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×