Innlent

Fíkniefnahundurinn Lúna fann spítt og gras

Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar Mynd/úr safni
Tvö fíkniefnamál komu upp í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Þar voru tveir piltar um tvítugt teknir með fíkniefni þegar þeir komu með ferjunni Baldri, sem leysir nú Herjólf af.

Annar pilturinn var með 10 grömm af amfetamíni og hinn með 17 grömm af marijúanna. Þeim var sleppt eftir yfirheyrslur og viðurkenndu þeir að eiga efnin.

Það var fíkniefnahundurinn Lúna sem fann efnin í fórum mannanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×