Innlent

Alvarlega slasaður eftir kappakstur í Kópavogi

Hafnarfjarðvegur er nú lokaður til norðurs.
Hafnarfjarðvegur er nú lokaður til norðurs. Mynd/Valgarður
Ökumaður bifreiðar er alvarlega slasaður eftir umferðarslys á Hafnafjarðarvegi við Kópavogslæk um klukkan korter yfir sjö í kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu leikur grunur á að tveir bílar hafi verið í kappakstri á veginum. Ökumaður annars bílsins hafi misst stjórn á honum en hinn bíllinn hafi látið sig hverfa. Hans er nú leitað af lögreglu. Lögregla ræðir nú við vitni að slysinu.

Veginum hefur verið lokað við Arnarnesbrúnna og býst varðstjóri hjá lögreglunni við að vegurinn verði lokaður næstu klukkutímana.

Vegfarendum er bent á Hafnarfjarðarveg og upp á Arnarneshæð og Fífuhvammsveg eða Reykjanesbraut. Lokað er fyrir umferð af Fífuhvammsvegi inn á Hafnarfjarðarveg.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×