Innlent

Ekið á tíu ára barn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ekið var á túi ára gamlan dreng á hjóli í Laugardalnum um fimmleytið í dag. Hann var fluttur á slysadeild. Talið er að drengurinn hafi fótbrotnað en ekki er vitað um frekari meiðsl, samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum. Drengurinn var með hjálm á höfðinu þegar óhappið varð.

-----------

Í þessari frétt í dag var fullyrt að drengurinn sem ekið var á væri fimm ára. Það er rangt og er beðist velvirðingar á þeirri missögn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×