Enn vatnslaust eftir Grímsvatnagos 2. september 2011 20:07 Mynd úr safni.
Bærinn Múlakot á Kirkjubæjarklaustri hefur verið vatnslaus síðan Grímsvötn gusu í vor á þessu ári. Sigurður Baldursson, íbúi á Múlakoti, segir hvern einasta dag hefjast á því að hann keyri yfir á næsta bæ með 1000 lítra vatnsker að sækja vatn ofan í fólkið og skepnurnar. „Og svo erum við bara að andskotast í þessu allan daginn og langt fram á kvöld," segir Sigurður. Vatnsbrunnur á Múlakoti þornaði í kjölfar gossins. Íbúarnir boruðu þá eftir vatni, eins og fleiri íbúar þar í sveit í baráttunni við vatnsskortinn. Borholan á Múlakoti skilaði hins vegar ekki því sem hún átti að skila, reyndist þurr. „Foreldrar mínir eiga búið. Og þau eru bara komin á það stig að þau vilja hætta og leggja þetta allt niður," segir Sigurður, en hann kveðst hafa sent tölvupósta á allt og alla en ekkert gerist. „Ég veit þau hafa átt í bölvuðu basli þarna á Múlakoti," segir Eygló Kristjánsdóttir, sveitarstjóri á Kirkjubæjarklaustri. Hún segir sveitarfélagið hins vegar ekki bera ábyrgð á því að koma vatni á bæinn. „Það eru þau sjálf sem þurfa að koma sér í vatn. Við munum aftur aðstoða þau eins og við getum," segir Eygló, en hún er nýkomin úr sumarfríi og getur ekki sagt nákvæmlega til um í hvaða farvegi málið er núna. „Þetta mun leysast," segir Eygló. „Þetta er allt spurning um pening sko." bætir hún við en getur ekki sagt til um hve langt sé í lausnina. Hún snýr aftur til vinnu eftir helgi og mun þá fara yfir málið.
Mest lesið Halla verði að upplýsa um bílakaupin Innlent Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Innlent Gæti orðið ófært í Þórsmörk Innlent Gul viðvörun vegna mikillar rigningar Veður Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Innlent Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Innlent Kýldi leigubílstjórann og borgaði ekki Innlent Biður eiginkonuna afsökunar á að hafa misst giftingarhringinn í Signu Erlent Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Innlent Fleiri fréttir Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Mótmæla brottvísun Venesúelamanna við Hallgrímskirkju Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Gæti orðið ófært í Þórsmörk Kýldi leigubílstjórann og borgaði ekki Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Meira en nóg að gera á Herjólfi í sumar Óljóst hvað veldur svo stórum jökulhlaupum „Vitum ekki til þess að nokkur hafi verið í hættu“ „Rúm tuttugu ár síðan við sáum þessa þróun fyrir“ Óvissustig vegna jökulhlaups og Druslugangan Lýsa yfir óvissustigi og skipa fólki að yfirgefa svæðið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Áhyggjur af gasmengun vegna jökulhlaups Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Sjá meira