Innlent

Hnífstunga við Lækjartorg

Ungur maður var stunginn með hníf við Lækjartorg uppúr klukkan sjö í dag. Maðurinn var fluttur á slysavarðstofu en sár hans reyndust hvorki djúp né alvarleg.

Árásin atvikaðist svo að maðurinn, sem er um 30 ára gamall, fór að munnhöggvast við annan mann við torgið. Sá var nær fertugu. Upphófust mikil rifrildi sem lyktaði svo með því að annar þeirra dró upp hníf og stakk hinn í síðuna. Ástæður slagsmálanna eru ekki þekktar.

Árásarmaðurinn var handtekinn og gistir nú fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík.

Mennirnir hafa báðir komið við sögu lögreglu áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×