Innlent

Viljayfirlýsingar um stóriðju á Bakka með leynd

Landsvirkjun hefur undirritað viljayfirlýsingar við þrjú fyrirtæki um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum. Upplýsingunum hefur af viðskiptaástæðum verið haldið leyndum gagnvart almenningi. Verði af samningum þýðir þetta að álver við Húsavík er úr sögunni.

Bandaríska álfyrirtækið Alcoa hefur í yfir sex ár undirbúið álver á Bakka en nú bendir flest til að það verkefni sé að renna út í sandinn. Vilji núverandi ríkisstjórnar birtist raunar skýrt fyrir tveimur árum þegar hún ákvað að framlengja ekki viljayfirlýsingu við Alcoa heldur leita fleiri kosta og hafa ráðamenn Landsvirkjunar síðan skýrt frá því að þeir ættu í viðræðum við átta til tíu aðila um sölu jarðhitaorkunnar í Þingeyjarsýslum.

Stöð 2 skýrði frá því í mars að þýska fyrirtækið PCC væri í viðræðum við Landsvirkjun um að reisa kísilverksmiðju við Húsavík. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 liggur þegar fyrir viljayfirlýsing milli Landsvirkjunar og PCC um 50 megavött og var hún undirrituð í vor með mikilli leynd. Þegar leitað var svara hjá Landsvirkjun í dag var því hvorki játað né neitað.

Heimildir fréttastofu greina einnig frá því að Landsvirkjun sé búin að undirrita viljayfirlýsingu við tvö önnur fyrirtæki um orku Þingeyinga. Getum er að því leitt að annað þeirra sé finnska fyrirtækið Kemira, en fram kom á Stöð 2 í vor að það hefði hug á að reisa sódíumklórat-verksmiðju á Bakka sem þyrfti 40 megavött. Þriðja fyrirtækið með undirritaða viljayfirlýsingu, og það eina sem Landsvirkjun hefur opinberað, er Carbon Recycling, sem vill kaupa 50 megavött fyrir metanólverksmiðju við Kröflu.

Áformuð raforkukaup þessara fyrirtækja eru hins vegar tiltölulega lítil miðað við minnst 400 megavatta álver og telja menn sem til þekkja líklegt að Landvirkjun, Landsnet og Norðurþing þurfi fleiri kaupendur á iðnaðarlóðina á Bakka til að standa undir kostnaði við innviði eins og hápennulínur og hafnargerð. Fyrr sé ekki unnt að ganga frá samningum við neinn þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×