Innlent

Ræktaði kannabis í næsta nágrenni við lögguna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kannabis.
Kannabis. Mynd/ PB.
Liðlega þrítugur karlmaður var dæmdur í sex mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir kannabisræktun. Ræktunin fór fram á Dalvegi í Kópavogi, einungis einu húsi frá lögreglustöðinni. Maðurinn, sem á að baki fjölmarga dóma, gekkst við brotum sínum. Talið er að efnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar. Við húsleit sem gerð var þann 28. september í fyrra fundust 2,5 kíló af maríjúana, 3,3 kíló af kannabislaufum og 234 kannabisplöntur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×