Innlent

Vilja fella brott allar takmarkanir á erlendri fjárfestingu

Davíð Þorláksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.
Davíð Þorláksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.
Ungir sjálfstæðismenn vilja fella á brott allar takmarkannir á fjárfestingum erlendra aðila hérlendis. Í ályktun frá stjórn félagsins segir að mikilvægt sé fyrir Ísland að fá nýtt fjármagn inn í landið og því beri að taka öllum erlendum fjárfestingum fagnandi. „Hvort sem eigendur fyrirtækja eða fasteigna eru íslenskir eða erlendir, þurfa þeir að sjálfsögðu að fara að lögum og reglum, svo sem skipulagslögum og lögum um umhverfismat,“ segir ennfremur.

Þá er öllum hugmyndum um að það skilyrði eigi að vera fyrir fjárfestingu erlendra aðila að Íslendingar geti fjárfest með sambærilegum hætti í heimalandi viðkomandi hafnað.

„Æskilegt er að sem flest ríki ýti úr vegi takmörkunum á fjárfestingum, en meiri hagsmunir eru fólgnir í því fyrir Ísland að útlendingar geti fjárfest hérlendis, heldur en Íslendingar erlendis. Íslenskir fjármagnseigendur verða að vera í stakk búnir til að keppa við erlent fjármagn og eiga ekki að geta falið sig undir verndarvæng stjórnvalda,“ segir ennfremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×