Innlent

Ölvaður og dópaður á 155 í Ártúnsbrekku

Mynd/Pjetur
Tveir lögreglumenn á mótorhjólum mældu ökumann í Ártúnsbrekkunni á 155 kílómetra hraða í gærkvöldi um klukkan níu. Litlu munaði að maðurinn keyrði lögreglumennina niður slíkur var hraðinn.

Þeir hófu eftirför en ökumaðurinn reyndi að forða sér með því að aka inn í Kvíslahverfi í Árbænum. Þar ók hann á kantstein af þvílíku afli að hjólastell bílsins skemmdist og var bíllinn óökufær á eftir.

Lögreglumennirnir handtóku manninn og kom í ljós að hann var undir miklum áhrifum áfengis og fíkniefna. Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum og bíllinn dreginn á brott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×