Innlent

Hönnu Birnu var brugðið þegar hún sá könnunina

Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
„Ég er þeirra skoðunar að það hafi verið rangt að ganga til þessara verkefna," sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun. Þá var hún spurð hvort hún vildi draga aðildarumsókn að ESB til baka.

Stöð 2 og Vísir greindu frá því í gær að Hanna Birna mældist með mikinn stuðning samkvæmt skoðanakönnun sem stuðningsmenn hennar létu framkvæma.

Samkvæmt könnuninni nýtur hún mikils stuðnings í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins, en hún er oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.

Hún sagði í viðtali í Sprengisandi að henni hefði verið brugðið þegar hún sá niðurstöðurnar. Aðspurð hvort hún hygðist bjóða sig fram sagðist Hanna Birna ekki vera búin að taka ákvörðun um það.

„En ég lofa að ég mun gera það fyrir landsfundinn," bætti hún hlæjandi við.

Hanna Birna segir að mótframboð gegn Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, ekki honum til höfuðs. Þvert á móti dáist hún að Bjarna og störfum hans sem formaður.

„En við eigum að geta valið um ólíka einstaklinga - sem eru kannski með svipaðar skoðanir þó þeir hafi mismunandi áherslur," sagði Hanna Birna.

Þó hún sé sammála Bjarna um að það eigi að draga aðildarumsóknina til baka, þá er hún ósammála afstöðu Bjarna til Icesave-málsins, en hann mælti með frumvarpinu sem var fellt af þjóðinni síðasta vetur.

Hanna Birna sagðist vera búin að tilkynna Bjarna að hún íhugaði alvarlega sína stöðu.

„Bjarni er skilningsríkur maður og auðvitað hef ég talað við hann," svaraði hún þegar Sigurjón spurði hana út í samskipti þeirra á milli.


Tengdar fréttir

Tæpur helmingur vill Hönnu Birnu

Tæpur helmingur landsmanna vill sjá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í formannsstóli Sjálfstæðisflokksins samkvæmt könnun Capacent Gallups. Núverandi formaður nýtur margfalt minni stuðnings en flokksystir hans, bæði meðal almennra kjósenda og Sjálfstæðismanna.

Hanna Birna fagnar áhuga Nubo

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segir að þeir sem vilji fjölga tækifærum í atvinnulífinu, og um land allt, hljóti að fagna áhuga öflugra og ábyrgra fjárfesta - hvaðan sem þeir koma.

Formannsslagur í uppsiglingu?

Hanna Birna Kristjánsdóttir útilokar ekki að fara gegn Bjarna Benediktssyni í formannskjöri á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Hún segist þó ekki hafa tekið neina ákvörðun enn. Mikill þrýstingur er innan flokksins á mótframboð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×