Innlent

Var beðinn um að hafa lægra og réðst á lögreglumann

Lögreglan.
Lögreglan.
Lögreglan á Selfossi stöðvaði rúmlega tvítugan karlmann í tvígang á skömmum tíma fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, fyrst um kvöldmatarleytið í gær og síðan aftur í nótt. Sextán ára piltur, sem tók bíl foreldra sinna ófrjálsri hendi, var einnig stöðvaður í nótt en sá ók réttindalaus um götur bæjarins ásamt tveimur vinum.

Karlmaður gistir fangageymslur lögreglunnar fyrir ölvun og óspektir en sá hinn sami varð illur þegar lögregla bankaði upp á hjá honum eftir að hafa borist kvörtun um hávaða frá íbúðinni. Hann réðist að lögreglumanni sem bað hann um að hafa lægra og var skellt í járn. Vegna ölvunar var ekki hægt að yfirheyra manninn í nótt en það verður gert um leið og hann hefur sofið úr sér áfengisvímuna.

Karlmaður var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri vegna áverka sem hann hlaut í slagsmálum við annan mann á skemmtistað í nótt. Hinn aðilinn var handtekinn og verður hann yfirheyrður síðar í dag. Þá var ungur karlmaður tekinn fyrir áfengis og fíkniefnaakstur á strandgötunni snemma í morgun.

Brotist var inn í verslun 11-11 í Þverbrekku í Kópavogi um hálfsexleytið í morgun. Þegar lögregla kom á staðinn var þjófurinn, fimmtán ára gamall piltur, enn á vettvangi en sá hafði brotið rúðu í glugga til að komast inn.

Pilturinn var undir miklum áhrifum áfengis og vímuefna og var því vistaður í fangageymslum lögreglunnar þrátt fyrir ungan aldur. Foreldrum hans og barnaverndaryfirvöldum hefur verið gert viðvart, en grunur leikur á að hann hafi ekki verið einn að verki. Þrír teknir fyrir ölvun við akstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×