Innlent

Útilokar ekki að bjóða aftur upp á ókeypis tannlækningar

Guðbjartur Hannesson.
Guðbjartur Hannesson.
Enn hafa ekki náðst samningar milli tannlækna og stjórnvalda vegna aukinnar niðurgreiðslu á tannlækningum barna. Velferðarráðherra útilokar ekki að bjóða aftur ókeypis tannlækningar að ári fyrir börn tekjulágra ef tannlæknar verða enn samningslausir.

Tannlæknar hafa verið samningslausir í tíu ár. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra leggur áherslu á að ná samningum sem fyrst enda fari tannheilsu barna hrakandi.

„Á meðan þetta ástand er svona þá lít ég á þetta sem mjög alvarlegt vandamál,“ segir Guðbjartur og bætir við:

„Þetta er bara eitt af fáum málum í heilbrigðiskerfinu íslenska þar sem við erum bara á niðurleið, og höfum verið undanfarin ár, það er að segja tannheilsa barna er að versna.“

Guðbjartur segir nóg af tannlæknum til staðar og reynt hafi verið að ná samningum.

„En þeir samningar hafa því miður ekki náðst og við munum halda áfram að reyna en þetta er algjörlega óviðunandi ástand varðandi tannheilsu barna.“

Stjórnvöld réðust í átaksverkefni í sumar þar sem börn tekjulágra foreldra fengu ókeypis tannlæknaþjónustu.

„Aftur á móti hefur það verkefni ekki alveg klárast og við eigum eftir að sinna þar ákveðnum einstaklingum sem sóttu um og hefðu átt að fá ókeypis tannlækningar. Svo það vandamál stendur ennþá, að leysa það. En stærsta vandamálið er það að við þurfum að ná samningum við tannlækna til lengri tíma,“ segir Guðbjartur.

Samkeppniseftirlitið vísaði á dögunum frá kæru tannlæknis á hendur velferðarráðuneytinu þar sem hann sakaði það um að standa fyrir ólöglegri samkeppni með átaki í tannlækningum fyrir börn tekjulágra.

Guðbjartur segist feginn frávísuninni.

„Er það stefnan að bjóða áfram upp á ókeypis tannlækningar fyrir tekjulægstu hópana?

„Við höfum ekki tekið afstöðu. Markmiðið var það að ná að greiða niður að minnsta kosti allt upp í 75 prósent, allar tannlækningar fyrir börn, þá jafnvel upp í 18 ára aldur,“ segir ráðherrann. „Ef að við lendum í sömu stöðu á næsta ári þá útiloka ég ekki að við reynum að gera þetta aftur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×