Innlent

Reyndi að stöðva slagsmál og var laminn fyrir vikið

Lögreglan. Mynd úr safni.
Lögreglan. Mynd úr safni.
Ráðist var á karlmann fyrir utan skemmtistaðinn 800 bar á Selfossi um tvöleytið í nótt þegar hann reyndi að koma í veg fyrir slagsmál.

Tveir til þrír menn veittu honum talsverða áverka og var hann fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur.

Lögregla kom á vettvang og yfirheyrði þá sem þar voru, en hafði lítið upp úr krafsinu. Hún biður því þá sem geta veitt upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480-1010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×