Innlent

Ekið á meðvitundarlausan mann - ökumaður flýði af vettvangi

Lögreglan lýsir eftir sem flýði af slysavettvangi.
Lögreglan lýsir eftir sem flýði af slysavettvangi.
Ökumaður fékk aðsvif undir stýri um fimm leytið í gærdag og missti við það stjórn á bifreið sinni og ók á kyrrstæða og mannlausa bifreið sem var í bifreiðastæði við Nóatún sunnan við Skipholt.

Báðir bílarnir reyndust óökufærir eftir óhappið. Vitni að árekstrinum segja að svartri jeppabifreið hafi síðan skömmu síðar verið ekið aftan á bifreið ökumannsins sem fékk aðsvif. Að sögn vitnanna forðaði ökumaðurinn sér af vettvangi án þess að athuga með ástand ökumannsins.

Vitni af þessu er beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 4441000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×