Innlent

Keyrði á ljósastaur og reyndi að flýja á tveimur jafnfljótum

Átta voru teknir fyrir ölvunar- og vímuefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af gistu tveir karlmenn fangageymslur lögreglunnar.

Annar ók á 140 kílómetra hraða á Sæbrautinni, við Skúlagötu, þar sem hámarkshraðinn er 60. Sá hinn sami á skrautlegan feril að baki og hefur margoft komið við sögu lögreglu fyrir of hraðan akstur undir áhrifum vímuefna.

Hinn ökumaðurinn keyrði á ljósastaur á Sæbrautinni, við Laugarnesveg, laust eftir miðnætti og ætlaði að yfirgefa vettvang á tveimur jafnfljótum. Hann var hinsvegar stöðvaður af vegfarendum sem létu lögreglu vita. Maðurinn slasaðist ekki en bifreiðin skemmdist talsvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×