Tíska og hönnun

Ýkt flott og hræódýrt

Sæbjörg Guðjónsdóttir innanhússhönnuður skrifar
Frystihúsaflísar, sundlaugaflísar eða hvað sem þið viljið kalla þær, þá eru þær komnar aftur inn. Það er reyndar mjög gott því þetta eru einar ódýrustu flísarnar sem þú færð í dag og öll viljum við nú hafa fallegt hjá okkur án þess þó að fara á hausinn.

Flísarnar hafa ákveðin sjarma og geta breytt innréttingu sem er frekar einföld og flöt yfir í rómantíska stemningu.

Með því að leggja flísarnar eins og múrstein er komið ákveðið mynstur sem er þó alls ekki yfirþyrmandi því flísarnar eru svo einfaldar. Ef þú vilt svo poppa þær aðeins upp er hægt að setja dökka fúu í stað ljósrar, leggja þær lóðrétt eða taka flísarnar í dekkri lit.

Þessar flísar koma mjög vel út í eldhúsi og á baðherbergi. Sjá meðfylgjandi myndaalbúm.

Facebooksíða Sæbjargar - Saja Interior Design




Tengdar fréttir

Svona gerir þú ofninn fallegri

Ofnar geta verið ansi leiðinleg fyrirbæri og ekki erum við öll svo heppin að hafa hita í gólfinu hjá okkur. En við þurfum nú samt á þeim að halda, sérstaklega á okkar yndislega landi þar sem getur orðið ansi kalt á vetrarkvöldum...

Svört snilld sem kostar lítið

Það er ótrúlegt hvað það breytir miklu að mála einn vegg svartan. Svarti veggurinn býr til ákveðna dramatík sem var kannski ekki fyrir, þegar allir veggir voru hvítir...

Lífið er ekki bein lína

Þetta er ekki bara vistvænt heldur líka svakalega flott og færir parketið yfir á næsta plan...






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.