Menning

Eftir lokin frumsýnt í Tjarnarbíói

Veggspjald sýningarinnar en Anna Rakel Róbertsdóttir sér um grafíska hönnun hennar.
Á morgun verður leikritið Eftir lokin eftir Dennis Kelly frumsýnt í Tjarnarbíói. Eftir lokin segir frá tveimur einstaklingum, Markúsi og Lísu, vinnufélögum sem eru innilokuð í sprengjubyrgi eftir kjarnorkuárás. Samskipti þeirra einkennast af togstreitu og spennu og ástandið er eldfimt.

Sjá má stiklu fyrir sýninguna í meðfylgjandi myndskeiði.

Leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson og Lilja Nótt Þórarinsdóttir fara með hlutverkin í sýningunni en henni er leikstýrt af Stefáni Halli Stefánssyni. Stefán og Lilja þýddu verkið. Gísli Galdur Þorgeirsson sér um tónlist og Brynja Björnsdóttir um leikmynd og búninga.

Leikfélagið SuðSuðVestur setur sýninguna upp í samstarfi við Tjarnarbíó. Höfundurinn Dennis Kelly er eitt fremsta núttímaleikskáld Breta en nú síðast var verk hans Elsku Barn sýnt við góðar undirtektir í Borgarleikhúsinu. Leikrit hans bera sterk höfundareinkenni og taka á eldfimum og viðkvæmum málefnum.

Nánari upplýsingar er að finna á vefnum tjarnarbio.is en miðasala fer einnig fram á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×